Hæ skvísur og stælgæjar

29.11.2008 21:15:57 / torfi

Jólahitt-smitt-kitt-litt-fitt-sjitt

Bara að undirbúa fólkið svona...líka gott að setja póst inn og búa til eftirvæntingu. Jólahittingur a la Eggertsgötu-stæl 8 verður í ár. MIg minnir eitthvað í kringum 20. des, annars á ritar....afsakið Magga eftir að minna mig á það hvenær það var nákvæmlega, dagsetningu og tímann.

Matseðillinn er ekki orðinn endanlegur en þó verður breyting frá síðustu tveimur hittingum. Rákum okkur á það í fyrra að kökur eru góðar en matur jafnvel betri. Þannig að það verður meira matarkyns á boðstólnum í ár...en þó kökur líka, svona upp á jólafílinginn og ég geti fitað ykkur til að hafa í matinn.



» 3 hafa sagt sína skoðun

12.10.2008 21:24:19 / torfi

Torfalækjar-cancel

Heil og sæl öll sömul

Hætt verður við Torfalæk sökum kreppu, mikið að gera og almenns brottfalls. Við reynum bara aftur síðar.
Annars er ég sammála fólki með hitting einn daginn. Nokkuð ljóst að ég og Magga munum í það minnsta kosti halda árlegan jólahitting fyrir aðfangadag.

kv.

Torfi     


» 3 hafa sagt sína skoðun

10.10.2008 21:11:41 / torfi

Torfalækjarhaustferð? taka 2

Heil og sæl öll sömul

Torfalækur-smækur-kækur yrði farinn 17-19 október. Fólk ræður hvort það er eina nótt eða tvær.

kílómetrafjöldi til Torfalækjar er 289 km og þá sama vegalengd til baka. Ef bíllinn eyðir 10 á hundraðið þá er þetta liðlega 60 lítrar af bensíni sem gerir um, (verð hjá Orkunni pr. líter 95 oktana) 165*60 = 9900/4 (ef fjórir í bíl)= 2475 á mann í bensínverð.
Gistigjald er venjulegt svefnpokagisting 2500 á mann (Jói Torfa vill að ég held ekki fara neðar) en ég gæti reynt að fá hann til að lækka í 2000 á mann ef menn verða tvær nætur...gjaldið er samt frekar sanngjarnt ef miðað er við aðgengi að grilli, eldavél, diskum, borðum og heitapotti.

Sjálfur legg ég til lambalæri til kvöldmats á laugardeginum. Fólk getur komið með annað góðmeti eða sameinast um að borga í eitt eða tvö önnur (fer eftir fjölda og ákvarðanartöku).
Ég legg til eftirmat, sem verður dí-sí-sæt súkkulaðikaka sett í múffuform og jafnvel þeyttur rjómi. Það er ekkert hollustu-bollustu-kjaftæði í þessari köku heldur eintómur sykur og hveiti, held að mesta hollustan sé í kakóinu sem er í þessu.

Nú er bara um að gera að kommenta og ákveða hvað fólk vill gera...hvort stemming sé fyrir þessu.

kv.

Torfi


» 6 hafa sagt sína skoðun

03.08.2008 22:35:56 / torfi

Torfalækjarhaustferð?

Les þetta einhver ennþá?

Var að velta fyrir mér önnur helgin í september stendur ágætlega fyrir Jóa og Ellu að ég held til að fá gesti á Torfalæk...annars yrði það október. Síðan má líka alltaf ræða vetrarferð.

spurning er? hverjir hafa áhuga?

Endilega bjalla í mig og ykkar á milli.

kv.

Torfi


» 2 hafa sagt sína skoðun

12.02.2008 20:48:45 / eyglo

Júhú! Meira um mat...


 

...því við elskum að borða og elskum að elskast og elskum mest af öllu að gera bæði í einu...

 

Við virðumst eitthvað vera að misskilja. Allavega misskildi ég og líka Helgi Vífill og eftir heita msn-umræðu um hvort okkar var að misskilja meira, hringdi Wong í Tapas og fékk nánari útskýringar. Niðurstaðan er sú að heimasíða Tapas er illa orðuð og netnördinn þeirra er bara að misskilja lífið, en við Helgi Vaff erum jafn töff og klár og áður.

 

Sem sagt! Við þurfum ekki öll að panta sama matinn heldur þarf hvert okkar að velja eitt af eftirfarandi fjórum fjölrétta máltíðum:

 

1) Óvissuferð...
Ævintýri sem endar vel. Vinsælasti réttur Tapasbarsins
Léttur fordrykkur
7 tapas tegundir valdar af eldhúsi hverju sinni.
Góð blanda af kjöti, fiski og grænmeti.
Eftirréttur að hætti matreiðslumeistaranns
kr. 3.730.-

 

2) Tapas nautabanans…
Nautalundir, lambalundir, kjúklingalundir, grísahnakki og humarhalar.
Borið fram á salati með bakaðri kartöflu og Alioli.

kr. 3.580.-

3) Del cocinero...
Kokkurinn velur hvítlaukristaða humarhala, nautalundir
á spjóti og bætir við fjórum leyndarmálum úr eldhúsinu.

kr. 3.750.-

4) Menu Barcelona 4 Tapas...

Marineraðar lambalundir með lakkríssósu
Beikonvafin hörpuskel og döðlur með sætri chillisósu
Hvítlaukristaða humarhala
Nautalundir á salati með pesto
Kr. 2830.-

 

Þannig að kjötætur geta samviskulaust fengið sér nautabana þar sem anti-kjötætur velja sér bara eitthvað annað...

 

Olræt?

 

Kv. Eygló tjútt 


» 3 hafa sagt sína skoðun

11.02.2008 13:52:34 / matthea

Þá-er-það-ákveðið!

..Við förum í nótt og rænum Soffíu frænku!

Kæru börn. Staður og stund fyrir febrúarhitt er eftirfarandi: Tapasbarinn, föstudagur 15. febrúar 2008, klukkan 20.00 að staðartíma (GMT). Borðaskipan er eftirfarandi: Laufey Helga og Helgi Vífill í öndvegi, við sitthvorn borðendann. Hinir inn á milli.

Fröken Laufey pantaði borð fyrir 13 manns afþví að Mattz taldi 13 hausa. Laufey taldi hins vegar aðeins 11 hausa. Hvað segir grunnskólakennarinn um þetta mál?

Annað og öllu alvarlegra. Nauðsynlegt er að panta hópmatseðil - sjá tapas.is - um helgar. Tel ég þetta þó ekki óyfirstíganlegt vandamál. Við komumst í gegnum þetta saman, er það ekki?

Hlakka til að sjá ykkur!

Tilhlökkunarkveðjur, Mattz.

Heimildarskrá: Síðasta færsla, komment 22.


» 14 hafa sagt sína skoðun

20.01.2008 16:51:10 / matthea

Kæru börn..

Er ekki kominn tími á annað sérlega vel heppnað matarboð á einhverjum sérlega skjémmtilegum veitingarstað í höfuðborg norðursins?

Staður og stund: Fyrsta tillaga er miður febrúar, A-India aftur?

Önnur tillaga?

Ástarkveðjur, Matthea Oddsdóttir (þessi litla ljóshærða).


» 22 hafa sagt sína skoðun

06.12.2007 14:05:12 / torfi

21. des: Jólakakó ala MET

Jebb, það er berlega 21. des sem stendur upp úr og hefur því verið valinn kakódagur kvennókrúsins þetta árið. Því, jú Matthea, heitt súkkulaði verður á boðstólnum, líkt og í fyrra. :) Ýmislegt fleira kakótengd verður líklega einnig í boði litlu fjölskyldunnar, það kemur í ljós hvað það verður, en það veit nú enginn. Og vandi er um slíkt að spá.

Allavega, mæting verður svona upp úr 15:30 (smá breyting) en auðvitað eruð þið velkomin hvenær sem er dagsins. Mætið bara þegar þið getið og hámið í ykkur af bestu lyst svo minnstur verði nú afgangurinn fyrir okkur hjúin á Eggertsgötu - því nú þegar látum við ofan í okkur nóg af kakótengdu efni. ;)

Eybjört Ísól verður vonandi í banastuði, það er hún nú venjulega hérna í stuðinu á Vetrargörðum, en maður veit aldrei hvernig hún tekur fólki eins og ykkur (ehemm). (",)

 

Hlökkum til að sjá ykkur!

Kakókveðjur,

M+E+T (við erum líka alveg met)

 

Ps. Það væri frábært ef hinir, sem hafa ekki svarað, láta vita hvort þeir komi eður ei, til þess að hafa hugmynd um hversu margir mæti.

 

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

03.12.2007 17:06:11 / torfi

Jólakaffi ... en þó ekkert kaffi á boðstólnum ... hámark pómó-stefnunnar - litlu jól - án krists

Ég og Magga höfum ákveðið að presturinn fái ekki að vera viðstaddur komandi litlu jól kvennókrúsins í ár. Jafnframt höfum við fyrir löngu tekið út kristilegt siðgæði í menntunarskrá okkar þar sem við lifum í synd.

En hvað varðar jólakaffið, þá erum við með tvær dagsetningar í boði. Það er annars vegar 14. des og síðan 21. des. Báðir dagar eru föstudagar (ég segi ekki lengur flöskudagar þar sem ég er orðinn templari eða eitthvað;).

Einnig stefnum við á að setja tímasetninguna 16:00 eða þar um bil. Þó með fullvissu um takmarkaða stundvísi fólksins í genginu. Enda skiptir stundvísi svo sem engu máli.

Svipað verður upp á borði í ár og í fyrra. Enginn ætti að fara svangur heim og um að gera að éta sem mest. Minnir að slatti af afgöngum endaði í hliðarspikinu hjá mér.

 

Endilega láta vita hvaða dagsetning hentar ykkur og vissulega munum við fara að vilja fólksins þó vonandi án þess að brjóta of harkalega á minnihlutanum.

 

Kkv.

 

Familien paa Eggertsgata 8, íb. 219

 

Ps. Erum búin að laga þessa frábæru færslu hjá kærastanum mínum sem er greinilega nokkuð utan við sig þessa dagana. ;) M


» 7 hafa sagt sína skoðun

11.11.2007 17:19:14 / helgi

Gömlum vinum slegið saman til borðs

Ákvarðanir eru böl karlmannsins. Já, svo mikið er víst. Þær hvíla víst á herðum mínum; karlmannsins, hverfa ekki, heldur verða bara þyngri og þyngri - nærast og styrkjast á biðinni. Mér líður eins og í kviksandi, með ákvarðanir á öxlunum, sem þyngja mig um sjö kíló. Ég sekk hratt. Með þessu áframhaldi fæ ég aldrei að borða framar. Það er liður í dauðunum, matarleysi.

Djók. Vitaskuld eru ákvarðanir bæði hamingja, og máske böl, kynjanna beggja. Ekki lemja mig stelpur. Gerið það! Ég er ekkert hrifinn af því að fólk meiði mig fyrir orð mín, skoðanir og stundum gjörðir.

Eigum við að negla niður kvöldverðarhátíð næsta föstudag, 16. nóvember? Já. Það skulum við gera. Munið, ég er karlmaðurinn; ákvörðunin hvílir á mér. Djók, stelpur! Látið ekki svona. Farið bara á klósettið, þvoið ykkur um hendur og inn í eldhús, ef þið ætlið að vera með þessi læti.

AusturIndíafélagið, klukkan 20, næsta föstudag.

Who's with me?

Mótmæli eða breytingatillögur?


» 14 hafa sagt sína skoðun

28.10.2007 22:09:25 / helgi

Kvöldmatur

Það þurfa ekki allir að ærast.

Það  sem meira er, það er betra, fari svo ekki fyrir viðkomandi, þ.e.a.s. að hann haldi geðheilsu; þá má búast við betra lífi og heilbrigðari skrokk en ella, engu að síður verður geirvörtufjöldinn sá hinn sami, hvernig sem geðheilsan fer eða tvær talsins, undir flestum tilvikum.

Aftur á móti, og þá að tilefni pistilsins: 

Það þurfa allflestir að nærast og er það asni mikilvægt upp á gott líf og heilbrigðan skrokk, þrátt fyrir að geirvörtufjöldinn verði sá hinn sami, undir flestum tilvikum.

Laufey Helga stakk upp á því við undirritaðan að við, þessi hópur okkar - sem sumir kalla Kvennókrú í mikilli geðhræringu en aðrir Kvennókrú alveg pollrólegir, myndum hittast og fá okkur að borða við tækifæri. Stakk hún upp á AusturIndíafjelaginu sem samkomustað, enda býr hún ská á móti.

Stundum kalla ég þennan hóp okkar, ekki hóp; heldur endurminningar, eylítið dapurbragði en skilningsríkur. Þess vegna er þetta þjóðráð hjá henni.

Sameinumst á ný.

Hvernig lýst ykkur á og hvaða tímasetning hentar best?

Nei er ekkert svar, sagði sá skuggulegi, fiskaði upp símann, er hann hafði í hótunum við kaffimál sem sagði þagði. Pollrólegt, líkt og sumir sem kalla þennan hóp kvennókrú.

"Halló mamma," svaraði sá skuggalegi í símann og velti fyrir sér geðheilsunni, því hann vissi að hann fengi brátt ljúffengi máltíð.


» 17 hafa sagt sína skoðun

03.10.2007 15:04:00 / eyglo

Les þetta einhver ennþá??

 

Síðasta sunnudagskvöld hittumst við nokkur á kaffihúsi, sem minnti mig á gömlu góðu dagana þegar við hittumst alltaf vikulega í kaffi - þá mundi ég hvernig þið lítið út og svoleiðis.

Hvernig væri að endurvekja kaffókvöldin?? Þess vegna bara einu sinni eða tvisvar í mánuði... Þyrftum ekki einu sinni að fara alltaf á kaffihús - nú erum við fullorðins fólk og slatti af okkur í eigin íbúðum. Bó hönk er t.d. reglulega með heimsóknartíma fyrir ógeðslega hot gellur, góður partý-andi í Laufeyjar íbúð og Hönnu Guðnýjar íbúð er bara æðisleg...

Langar bara að sjá ykkur hressa fólk örlítið oftar,

Hvað segiði?

 

 Eygló

 

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

18.09.2007 13:28:08 / hanna

Alveg að verða fullorðin...

Jæja þá er gamla loksins flutt að heiman og nú fer allt að komast í stand á íbúðinni...

 Mig langaði þess vegna til að biðja ykkur, elsku fólk, um að taka frá laugardaginn 13. október, því þá verður haldið innflutnings- og afmælispartý a la HG á Öldugranda 13.

 Þangað til eru að sjálfsögðu allir velkomnir í heimsókn - endilega droppa við...

Kveðja,

Hanna Guðný umsjónarkennari ;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

11.09.2007 09:56:11 / torfi

Torfalæks-cancel

Geri mér svona nokkurn veginn grein fyrir að fáir væru að reikna með Torfalæk nú komandi helgi, en þó var ég eitthvað búinn að minnast á að 15-16. sept væri kjörin brottfararhelgi. Því miður vegna anna hjá mér (barn, kona og vinna - hin heilaga þrenning) og vegna þess að Torfalækjarhjúin (Jói og Ella) ætla í sitt fyrsta frí síðan í apríl 2007 um helgina, þá verð ég að afboða komandi Torfalæk.

Þó verður að gera einhverja könnun á því hvenær væri best að sú ferð yrði farin, en þá jafnvel eftir áramót?

Þar sem ég er nú ekki búin að sjá sum í langan tíma að þá er ég (Torfi) með sítt ár, spengilegur, hávaxinn og allur hinn gervilegasti að vaxtarburði á öllum útlimum.


» 1 hafa sagt sína skoðun

16.08.2007 11:46:38 / laufey

Má bjóða ykkur í bæinn...?

Góðann og blessaðan daginn gott fólk,

 Í tilefni heimflutninga og nýrra heimkynna langar mig að bjóða í smá kaffi næsta laugardag um klukkan 15. Alveg tilvalið fyrir gott fólk að kíkja við á menningarröltinu um miðbæinn. Aldrei að vita nema maður skelli í vöfflur ;)

Heimilisfangið er Lindargata 46, íbúð 103 (jarðhæð). Beint fyrir neðan Regnbogann á Hverfisgötu og beint fyrir ofan skuggahverfisskrímsli í byggingu.

 Vonast til að sjá sem flesta!

- Laufey

p.s. Þið vitið samt að þið eruð alltaf velkomin í heimsókn - anytime!


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 22